Norðfjarðarhöfn er ein stærsta fiskihöfn landsins. Hafnarsvæðið skiptist upp í aðalhöfn annars vegar, innst í firðinum, og hins vegar eru bryggjur í miðbæ Neskaupstaðar. Í aðalhöfninni eru Togarabryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja, Netagerðarbryggja og smábátahöfn. Bryggjur miðbæjarins eru Bæjarbryggja og Gamla bæjarbryggjan. Sú fyrrnefnda er stálþil og þjónar aðallega sem viðlega, en einnig hafa minni skemmtiferðaskip haft þar viðkomu. Gamla bæjarbryggjan er hluti af Safnahúsinu í Neskaupstað og þjónar þessi skemmtilega trébryggja sem dorgveiði- og útsýnisbryggja. Miðja vegu á milli aðalhafnarinnar og Gömlu bæjarbryggjunnar er svo Gamla netagerðarbryggjan, sem þjónaði netaverkstæði sem var þarna staðsett. Starfræktur er fiskmarkaður á Norðfirði sem þjónustar aðallega smábátum sem þar landa.
Hafnarvog er staðsett við höfnina í Neskaupstað, þar er bæði pallavog og bílavog.
Hafnarheiti | Norðfjarðarhöfn, Port of Nordfjordur |
Hafnargerð | Stór fiskihöfn |
Hafnarbakkar | Togarabryggja, Löndunarbryggja, Olíubryggja, Netagerðarbryggja,Bæjarbryggja |
Smábátahöfn | Já |
Kallrás | 12 |
Heimilisfang | Naustahvammi 76, 740 Fjarðabyggð |
Póstfang | Hafnargata 2, 730 Fjarðabyggð |
Netfang | nhofn@fjardabyggd.is |
Sími/vaktsími | + 354 477 1333 |
Staðsetningarhnit | Latitude 65°08′23”N; longitude 13°41′10′′W |
Heildarlengd bryggjukanta | 1114 m |
Innsigling | Djúpur og hindrunarlaus fjörður |
Hafnsöguþjónusta | Skylda olíu- og lýsisskip og skip yfir 100m að lengd |
Staðsetningarhnit hafnsögu | 65°09’N 13°37’W |
Dráttarbátur | Dráttarbátur með 27.8t togkraft og vatnsbyssu sem afkastar 300 m3 / klst. er fáanlegur frá Reyðarfirði. Verðskrá má finn hér. |
Staðartími | GMT |
Opnunartími | Sólarhringsþjónusta allt árið |
Lágmarksdýpi á fjöru | >25m (82ft) |
Munur flóðs og fjöru | 1.7m (5.5ft) |
Straumur | 2-3 hnútar út fjörðinn |
Undiralda | 0m (0ft) |
Hafís | Enginn allt árið |
Skilyrði um hæð | Engin |
Skilyrði vegna innsiglingar | Engin |
Gjaldskrá | Gjaldskrá er gefinn út frá 1. janúar fyrir hvert almanaksár |
Sjókort | #714 Norðfjörður |
Útgefandi | Sjómælingar Íslands |
Veffang vegna sjókorta | https://atlas.lmi.is/mapview/?application=LHG |
Heiti | Bakki | Viðlegurými |
Dýpt | Gerð |
Löndunaraðstaða minni báta | Austan | 82m | 6m | Harðviður |
Togarabryggja | Sunnan | 284m | 7,5 - 10m | Stálþil |
Togarabryggja | Sunnan | 60m | 10m | Stálþil |
Löndunarbryggja | 166m | 6,5 - 7,5m | Stálþil | |
Olíubryggja | Austur/Vestur | 143m | 8m | Stálþil |
Netagerðarbryggja | 49m | 49m | Stálþil | |
Gamla Netagerðarbryggja | Austur/Vestur | 31m | 7m | Harðviður |
Bæjarbryggja | Austan | 72m | 6m | Stálþil |
Bæjarbryggja | Sunnan | 71m | 7m | Stálþil |
Bæjarbryggja | Vestan | 57m | 4m | Stálþil |
Bæjarbryggja | Gamla | 73m | 2,5 - 4m | Fura |
Löndunaraðstaða | Smábátar | 25m | 4m | Harðviður |