Vigtanir eru framkvæmdar af starfsmönnum Fjarðabyggðarhafna.
Pallavogir eru til taks á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Stöðvafirði.
Bílavogir eru til vigtunar faratækja og gáma á Norðfjarðarhöfn, Eskifjarðarhöfn og Reyðarfjarðarhöfn.
Hægt er að hafa samband í vaktsíma hafnarinnar ef þörf er á vigtun utan dagvinnutíma og er þá greitt fyrir útkall samkvæmt gjaldskrá.