Hafnsaga

Hafnsöguþjónusta

Öll skip lengri en 100 m, að undanteknum innlendum fiskiskipum, og öll skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæði. Tilkynning um komu til hafnar og ósk um lóðsþjónustu skal berast með sólarhrings fyrirvara (24 klst) í vaktsíma viðkomandi hafnar.

Sé um lóðsskylt skip að ræða eða óskað er lóðsþjónustu skal, auk þess sem að framan getur, láta hafnsögumann vita tveimur klst. fyrir komu í lóðspunkt í síma 860 4538. Gjald fyrir hafnsögu er skv. gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna.

Undanþágur frá hafnsöguþjónustu

Öll skip lengri en 100 m, að undanskildum innlendum fiskiskipum, og öll skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann við komu, brottför og siglingu um hafnasvæði. Hafnarstjórn Fjarðabyggðar er heimilt að veita skipstjóra skips sem skylt er að lúti hafnsögu undanþágu.

Slík undanþága skuldbindur viðkomandi skipstjóra til að hafa náið talstöðvarsamband við hafnsögumenn og hlíta í einu og öllu fyrirmælum þeirra, ella má svipta hann undanþágunni fyrirvaralaust. Undanþágan er bundin því að veður og aðrar aðstæður við tilteknar hafnir séu í góðu lagi enda hafi skipstjóri alltaf samband við hafnarvörð eða yfirhafnsögumann sem upplýsa hann um aðstæður hverju sinni. Ef vindur fer yfir 18 m/s gildir undanþágan ekki og skipstjóri skal þiggja þjónustu hafnsögumanns.

Skilyrði undanþágu

Skilyrði undanþágu eru að skipstjóri hafi siglt viðkomandi skipi í það minnsta fimm sinnum til hafnarinnar, ekkert verið athugavert við þær siglingar og að skipstjóri sé kunnugur staðháttum. Þá er hafnarstjórn heimilt að veita undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Undanþágan gildir einungis til siglinga í þá höfn/þær hafnir sem viðkomandi hefur í það minnsta fimm sinnum stýrt skipi sínu og fellur sjálfkrafa niður ef viðkomandi hefur ekki siglt í viðkomandi höfn í sex mánuði.

Hafnaryfirvöld geta fellt undanþágu þessa úr gildi fyrirvaralaust ef í ljós koma einhverjir vankantar á framkvæmd eða vanræksla að hálfu skipstjóra eða áhafnar, eða ef breytingar verða á vinnureglum hafnarinnar um veitingu undanþága frá hafnsöguskyldu.