Um síðastliðna helgi var mikið um að vera á höfnum Fjarðabyggðar. Þar voru 10 komur og brottfarir á fraktskipum af öllum gerðum. Síld var landað í höfninni á Norðfirði og Eskifirði ásamt tveimur togurum og nokkur umferð var af línubátum.